TÖLFRÆÐI FRAMFARA OG BÆTINGA – EÐA STÖÐNUNAR OG AFTURFARAR?

Í töflunni sem fylgir hér neðst er skrá yfir ‚mínútur spilaðar‘ og ‚framlag‘ „heimaaldra“ (homegrown), íslenskra leikmanna sem spila meira en 3 mínútur að meðaltali í Bónusdeild karla, eftir 13 umferðir, á yfirstandandandi leiktímabili, 24-25. Einnig eru sýndar sömu tölur fyrir næstliðið leiktímabil, 23-24 (eða það tímabil sem þeir spiluðu síðast, ef þeir spiluðu ekki í fyrra). Öftustu dálkarnir í töflunni sýna samanburð á mínútum og framlagi á yfirstandandi tímabili og „besta“ tímabili leikmannsins á ferlinum (eða síðasta virka). „Afturför“ eða samdráttur er sýndur með rauðum mínustölum en bæting / framför með bláum tölum.

Tölurnar eru meðaltalstölur, eingöngu úr úrvalsdeildarleikjum, teknar af kki.is

Eins og gefur að skilja eru ekki allar tölur með öllu sambærilegar. Sumir leikmennirnir hafa t.d. enga fyrri reynslu úr efstu deild og þá er sýndur munur á frammistöðu úr 1. deild (sem er forvitnilegt m.t.t. spilatíma og ábyrgðar ungra leikmanna).

Auðvitað eru líka ýmsar aðrar breytur sem skipta máli. Einhverjir eru komnir á efri ár (raunar bara 3 leikmenn eldri en 33 ára) og eðlilegt að framlag lækki og mínútum fækki. Aðrir hafa spilað færri leiki vegna meiðsla, eru e.t.v. ekki komnir í fulla leikæfingu aftur. Sumir hafa lítið verið með vegna ungs aldurs en hafa nú fengið meiri tíma og ábyrgð með hækkandi aldri og þroska, og það sést á tölunum.

En ályktunin sem ég ætla að kasta hér fram er þessi: Mýtan um að allir bæti sig einhver ósköp mest af því að allt er fullt af erlendum leikmönnum er í engum tengslum við raunveruleikann. Hið  rétta er að margir góðir, heimaaldir leikmenn á besta aldri spila færri mínútur og skila lægra framlagi, þrátt fyrir (eða kannski frekar: vegna þess að) erlendum leikmönnum fjölgar stöðugt og ógnvænlega. Í heildina sýna 65,5% af tölunum í töflunni, rauðu tölunum, „samdráttarsýki“ í íslenskum karlakörfubolta efstu deildar. Það er sláandi.

Það er hægt að skoða þessar tölur út frá mörgum sjónarhornum og finna skýringar á einstökum sveiflum, en þegar á allt er litið, heildarsamhengið, þá er stefnan í eina átt: Niður á við. 

En drögum út úr töflunni dæmi til skýringar. Af hverju er staðan þessi hjá eftirfarandi leikmönnum, öllum 22-30 ára, á besta hugsanlega aldri?

Leikmaður

Frl. nú

Frá besta

Emil Karel Einarsson ’94

3.8

-9.7

Davíð Arnar Ágústsson ’96

1.9

-6.8

Ragnar Örn Bragason ’94

2.9

-7.1

Pétur Rúnar Birgisson ’96

10.2

-8.6

Júlíus Orri Ágústsson ’01

3.8

-4.9

Snjólfur Marel Stefánsson ’98

4

-5

Þorvaldur Orri Árnason ’02

9.9

-4.5

Veigar Áki Hlynsson ’01

7.7

-3.1

Halldór Garðar H. ’97

10.8

-5.1

Hilmar Pétursson ’00

10.9

-8.6

Sigurður Pétursson ’02

11.9

-5.1

Adam Eiður Ásgeirsson ’98

10.5

-2.8

Eysteinn Bjarni Ævarss. ’95

4.1

-2.7

Kristófer Breki Gylfason ’97

5.9

-4.1

Björgvin Hafþór ’93 – Gri.

4,0

-8.8

Nökkvi Már Nökkvason ’99

0.7

-2.1

Oddur Rúnar Kristjánss. ’95

2.8

-6.3

     

Valur Orri Valsson ’94

6.7

-8.1

Dúi Þór Jónsson ’01

10.2

-3.1

Tómas Þórður Hilmarss. ’95

3.4

-12.4

Viktor Máni Steffensen ’02

3.5

-12.5

 

Ekki er eitt og sama svarið við spurningunni hér ofar, en margir á listanum (en ekki allir) eru því miður að mestu uppfyllingarefni fyrir erlenda leikmenn, settir inn á til að hvíla þreytta útlendinga, og vita að þeir „eru þarna“ til að gera eitthvað gagn og sem minnst ógagn. Ekki uppbyggilegt hlutverk. Framlag þessara leikmanna fer ekki lækkandi vegna þess að engir útlendingar eru í þeirra liðum. Það er klárt.

Og hvers vegna eru eftirfarandi að „gera gott mót“?

Leikmaður

Frl. nú

Yfir besta

Björgvin Hafþór ’93 – ÍR

15.8

+5.6

Veigar Páll Alexanderss.  ’01

12.1

+3.8

Orri Gunnarsson ’03

16.2

+2.7

Hákon Örn Hjámarsson ’99

10.7

+2.4

Þórir Guðmundur Þorbj. ’98

22.2

+1,4

Hilmar Smári Henningss. ’00

17.6

0

 

Er það vegna þess að þeir spila í liðum með fleiri eða betri útlendinga en hinir? Nei. Það er fyrst og fremst vegna þess að þeim er fengið ábyrgðarhlutverk. Þeir mega taka af skarið og láta hluti gerast, og vita það.

Fallegasta dæmið í þessari tölfræðisamantekt er Björgvin Hafþór Ríkharðsson:

Hjá Grindavík: mínútur -19:44  og framlag -8,8 frá hans besta

Hjá ÍR: mínútur +2:26 og framlag +5,6 yfir hans besta

Skýringa á þessum umskiptum hjá Björgvin er ekki að leita í mismunandi útlendingafjölda hjá Grindavík og ÍR. Það hafa 5 erlendir leikmenn komið við sögu í vetur hjá báðum liðunum. Skýringanna er eð leita hjá þjálfurum liðanna. Hjá ÍR nýtur Björgvin trausts þjálfarans til að skipta sköpum og láta að sér kveða, spilar 24:31 mín. að meðaltali í 6 leikjum, en hjá Grindavík var hann í aukahlutverki og spilaði 8:02 mín. í 7 leikjum.

Enginn heldur því fram að erlendir leikmenn séu til bölvunar, hafi ekki bætt og muni ekki bæta leikmenn og körfuboltann almennt. Um þetta eru ábyggilega allir sammála. En að hafa í liði sínu 4-5 eða fleiri erlenda leikmenn er út úr öllu korti. Það mun hratt og örugglega drepa allt frumkvæði, leikgleði og getu úr heimaöldu leikmönnunum. Fleiri og fleiri verða eingöngu statistar, glata sjálfstrausti og einbeitingu. Í besta falli staðna. Og hætta svo.

Hér kemur svo Excel taflan, sem ekki nýtur sín sem skyldi hér, en vonandi er hægt að grufla sig í gegn um þetta:

B C D E G H I  
Tímabil 24-25 24-25   23-24 23-24 Frávik Besta tímabil Mism. H-B Mism. H-B  
Þátttaka Mín. Framlag   Mín. Framlag E-F (síðasta tímab.) Mín. Frl.  
                     
Álftanes   99,3                
Dúi Þór Jónsson ’01 22:59 10.2   30:49 12.8   21-22, Þór Ak. -11 -3.1  
Haukur Helgi Pálsson ’92 30:42 14   31:20 17.3   15-16, Njarðvík -2.75 -6.2  
Hörður Axel Vilhjálmss. ’88 30:14 10.2   28:34 12.2   11-12, Keflavík -3.33 -10  
Tómas Þórður Hilmarss. ’95 9:32 3.4   15:11 6.6 (Stjarnan) 17-18, Stjarnan -21.92 -12.4  
Viktor Máni Steffensen ’02 13:09 3.5   27:52 16 (Fjölnir, 1. d.) 23-24, Fjölnir -14.43 -12.5  
Samtals 105:56 41.3                
Hlutfall 53% 41.6%       Leikmenn sem spila minna en  3:00* 6      
                     
Grindavík   111,1                
Kristófer Breki Gylfason ’97 27:32 5.9   24:45 5.3   22-23 -3.93 -4.1  
Björgvin Hafþór ’93 8:02 4,0   14:49 5.2 (21-22) 16-17, Tindast. -19.44 -8.8  
Nökkvi Már Nökkvason ’99 5:32 0.7   11:59 2.8 (22-23) 22-23 -6.27 -2.1  
Oddur Rúnar Kristjánss. ’95 11:18 2.8   19:26 6 (22-23, Njarðvík) 15-16, Njarðvík -21.06 -6.3  
Ólafur Ólafsson ’90 27:20 12.8   30:24 15.3   22-23 -6.99 -7.4  
Valur Orri Valsson ’94 20:41 6.7   22:09 7.1   15-16, Keflavík -8.76 -8.1  
Samtals 99:45 33.8                
Hlutfall 49.7% 29.6%       Leikmenn sem spila minna en  3:00* 4      
                     
Haukar   93,8                
Hugi Hallgrímsson ´02 11:33 5.5   14:01 6.4   23-24 -2.68 -0.9  
Hilmir Hallgrímsson ’02 8:49 2.5   28:18 9.1 (Vestri, 1. deild) (20-21, Stjarnan) 6.42 2  
Hilmir Arnarson ’05 20:18 6.3   14:30 4.6   23-24 5.88 1.7  
Kristófer Breki Björgvins. ’07 9:16 2.1   03:27 1.6   23-24 5.98 0.5  
Birkir Hrafn Eyþórsson ’06 12:57 3.1   31:13 15.3 (Selfoss, 1. deild) 23-24 -18.56 -12.2  
Ágúst Goði Kjartansson ’04 18:45 1.2   01:10 0.7 (20-21) 20-21 17.35 0.5  
Samtals 80:18 20.7                
Hlutfall 40% 22.1%       Leikmenn sem spila minna en  3:00* 6      
                     
Höttur   92.7                
Adam Eiður Ásgeirsson ’98 26:58 10.5   26:45 10.2   21-22 0.37 -2.8  
Eysteinn Bjarni Ævarss. ’95 15:13 4.1   14:28 5.8 (Álftanes) 17-18, Stjarnan -5.97 -2.7  
Samtals 41:71 14.6                
Hlutfall 21% 15.7%       Leikmenn sem spila minna en  3:00* 7      
                     
ÍR   97,2                
Björgvin Hafþór ’93 24:31 15.8   14:49 5.2 (21-22, Grindavík) 20-21, Grindavík 2.26 5.6  
Hákon Örn Hjámarsson ’99 30:47 10.7   30.03 8.3 (22-23) 22-23 0.44 2.4  
Jónas Steinarsson ’03 03:43 0.4   05:20 1.5 (22-23) 22-23 -1.77 -0.9  
Tómas Orri Hjálmarsson ’03 13:43 2.1   07:39 2.6 (Haukar) 23-24, Haukar 6.04 -0.5  
Samtals 71:64 29                
Hlutfall 36% 29.8%       Leikmenn sem spila minna en  3:00* 4      
                     
Keflavík   110,9                
Halldór Garðar H. ’97 24:03 10.8   22:19  9   17-18, Þór Þ. -4.08 -5.1  
Hilmar Pétursson ’00 28:57 10.9   31:10 19.5 (21-22, Breiðablik) 21-22, Breiðabl. -2.53 -8.6  
Sigurður Pétursson ’02 22:11 11.9   28:58 17   23-24 -6.47 -5.1  
Samtals 74:71 33.6                
Hlutfall 37% 30.3%       Leikmenn sem spila minna en  3:00* 7      
                     
KR   109,1                
Þorvaldur Orri Árnason ’02 27:29 9.9   26:44 12.7 (Njarðvík)  22-23 -3.83 -4.5  
Þórir Guðmundur Þorbj. ’98 35:17 22.2   32:41 20.8 (Tindastóll) 23-24 2.76 1,4  
Orri Hilmarsson ’99 14:07 4.2   26:13 7.8 (19-20, Fjölnir) 18-19 5.99 -0.4  
Veigar Áki Hlynsson ’01 18:00 7.7   26:07 10.8 (22-23) 22-23 -8.07 -3.1  
Björn Kristjánsson ’92 05:29 1.3   27:09 6 (21-22) 16-17, Njarðvík -27.83 -11.7  
Lars Erik Bragason ’06 04:34 0.5   09:48 4 (22-23) 22-23 -5.14 -3.5  
Samtals 104:16 45.8                
Hlutfall 52.1% 42%       Leikmenn sem spila minna en  3:00* 3      
                     
Njarðvík   103,1                
Veigar Páll Alexanderss.  ’01 31:18 12.1   19:46 6.5   21-22 12.05 3.8  
Snjólfur Marel Stefánsson ’98 13:11 4   05:09 2.1   17-18 -6.3 -5  
Brynjar Kári Gunnarsson ’05 12:19 3.3   18:46 8.3 (Fjölnir, 1. deild) 23-24 -6.27 -5  
Samtals 56:48 19.4                
Hlutfall 28.2% 18.8%       Leikmenn sem spila minna en  3:00* 7      
                     
Stjarnan   119,6                
Kristján Fannar Ingólfson ’05 04:35 1.4   10:43 3.8   22-23 -12.85 -3.8  
Hlynur Bæringsson ’82 08:36 4.2   23:08 13.5   2010, Snæfell -27.05 -28  
Hilmar Smári Henningss. ’00 31:26 17.6   33:36 17.6 (22-23, Haukar) 22-23, Haukar -2.1 0  
Ægir Þór Steinarsson ’91 30:36 21.7   35:07 20.8   20-21 -1.05 0.7  
Bjarni Guðmann Jónsson ’99 17:35 9.2   27:20 13.8 (18-19, Skallagr.) 18-19, Skallagr. -9.85 -4.6  
Júlíus Orri Ágústsson ’01 11:15 3.8   23:20 8.7   23-24 -12.05 -4.9  
Viktor Jónas Lúðvíksson ’06 07:23 5   03:02 1.5 (22-23) 22-23 4.21 3.5  
Orri Gunnarsson ’03 30:36 16.2   33:01 13.5 (22-23, Haukar) 22-23 -2.65 2.7  
Samtals 140:42 79.1                
Hlutfall 70.2% 66.1%       Leikmenn sem spila minna en  3:00* 2      
                     
Tindastóll   114,4                
Sigtryggur Arnar Björnss. ’93  32:20 10.9   21:04 7.7   17-18 1.92 -6  
Pétur Rúnar Birgisson ’96 18:54 10.2   20:59 8.3   16-17 -14.78 -8.6  
Ragnar Ágústsson ’01 15:34 7.3   17:42 6.7   23-24 -2.08 0.6  
Hannes Ingi Másson ’96 10:20 3.4   04:11 1.1   17-18 -1.29 -0.8  
Samtals 76:28 31.8                
Hlutfall 38.1% 27.8%       Leikmenn sem spila minna en  3:00* 4      
                     
Valur   97,2                
Hjálmar Stefánsson ’96 28:02 10   21:36 7.9   18-19, Haukar -1.21 -4.2  
Ástþór Atli Svalason ’02 12:01 4.5   20:06 6.8   23-24 -8.05 -2.3  
Frank Aron Booker ’94 27:58 12.8   24:45 12.1   19-20 0.3 -0.6  
Kristinn Pálsson ’97 33:30 13.5   33:04 16.8   23-24 0.26 -3.3  
Kári Jónsson ’97 31:18 11.9   19:57 8.9   22-23 -0.99 -6.4  
Karl Kristján Sigurðarson ’05 03:02 0.9   01:11 0.4   (23-24) 1.91 0.5  
Samtals 135:11 53.6                
Hlutfall 67.6% 55.1%       Leikmenn sem spila minna en  3:00* 6      
                     
Þór Þ.   102,0                
Emil Karel Einarsson ’94 14:51 3.8   16:03 4.3   17-18 -14.79 -9.7  
Davíð Arnar Ágústsson ’96 16:08 1.9   18:20 4.3   17-18 -9.06 -6.8  
Ragnar Örn Bragason ’94 14:44 2.9   15:16 4   20-21 -12.09 -7.1  
Ólafur Björn Gunnlaugs. ’02 17:13 7.5   03:09 1.1 (20-21, ÍR) 20-21 14.04 6.4  
Samtals 62:16 16.1                
Hlutfall 31.1% 15.8%       Leikmenn sem spila minna en  3:00* 5      
            *Langflestir þessara  spila minna en 01:00        
                     
              Samtals 29 84  
              Hlutfall 34.5% 65.5%  

Skildu eftir svar

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *