Magnús Halldórsson, hestamaður og hagyrðingur á Hvolsvelli, sendi mér meðfylgjandi mynd af sér á Stuðli sínum með fyrirsöginni: Gamall maður á ágætum hesti. Sagðist hafa verið á útreiðum í krapasulli, sem þó væri óvanaleg færð á þeim slóðum.
Ég sendi honum þessa vísu til baka:
Í krapasulli karlinn gamli
keyrir ljóðastaf.
Flugtak nálgast, helst að hamli
að hettan fýkur af.
Magnús svaraði um hæl:
Hæðum andans helst ég næ,
huga minn þá næri.
Ef ljóðstafina letrað fæ,
á listilegu færi.