Ágætu Selfyssingar og nærsveitamenn!
Jólagjöfin í ár er bókin „Nýja íslenska stjórnarskráin“.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti Íslands 1980-1996, ritar formálsorð þessarar fallegu bókar, sem hefur að geyma nýju stjórnarskrána ásamt ítarlegum sögulegum inngangi eftir Þorvald Gylfason.
Hægt er að nálgast bókina hjá undirrituðum á einfaldan hátt, og á mjög hagstæðu verði, aðeins 1.200 kr.
Svona skal fara að:
- Greiða inn á reikning Stjórnarskrárfélagins (Upphæð = fjöldi eintaka x 1.200 kr.). Skýring: “stjórnarskrá” (kt. 5908102230) (reikningsnúmer: 0513-14-403456)
- Senda kvittun í greiðsluferlinu á netfangið mitt: gylfithorkelsson@gmail.com
- Hringja í mig í síma 895-8400 og við komum okkur saman um hvenær og hvar ég afhendi pöntunina.
Kveðja,
Gylfi Þorkelsson